Varað við hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi í kvöld og nótt

Seint í kvöld og fram á morgundaginn er í gildi gul viðvörun fyrir Breiðafjarðarsvæðið, einkum þó norðanvert Snæfellsnes. Þar gengur í suðvestan 13-20 m/s og má búast við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 30 m/s, sem geta verið varhugaverðar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Ástæða er til að ferðaþjónustufólk láti vegfarendur vita af þessu. Almennt er fólk hvatt til að sýna aðgát, ganga frá lausum munum og fylgjast með veðurspám. Viðvörun er í gildi frá klukkan 22 í kvöld til 07 í fyrramálið.

Varað við hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi í kvöld og nótt - Skessuhorn