Fréttir

true

Hefja undirbúning kolefnisbindingar á Grundartanga

Fyrr í dag undirrituðu fulltrúar Carbfix, Elkem á Íslandi og Þróunarfélags Grundartanga undir samstarfssamning um undirbúning að föngun og kolefnisbindingu frá kísilmálmveri Elkem. Viðstaddir undirritunina voru fulltrúar fyrirtækjanna, sveitarfélaga og gestir auk Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra. Meginmarkmið samstarfsins er að fanga koldíoxíð úr útblæstri Elkem og binda til frambúðar með því að nýta aðferð Carbfix…Lesa meira

true

Séra María ráðin sóknarprestur í Reykholti

Undir lok síðustu viku var gengið frá ráðningu sr. Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur í starf sóknarprests í Reykholti í Borgarfirði. Þrjár umsóknir bárust um starfið og var það niðurstaða valnefndar að ráða Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur, sóknarprest í Fossvogsprestakalli, í starfið og hefur biskup Íslands staðfest ráðninguna. María fagnar ráðningunni og segir á FB síðu sinni um…Lesa meira

true

Karlakórinn Heiðbjört gefur út hljómplötu og hvetur til plötuspilarakaupa

„Það var eins og við manninn mælt! Plata á leiðinni og allt ætlar um koll að keyra.“ Þannig hljómar upphaf tilkynningar sem Karlakórinn Heiðbjört var að senda frá sér. Kórinn samanstendur af körlum af sunnanverðu Snæfellsnesi sem koma saman einu sinni í viku yfir vetrarmánuðina og syngja sér til sálubótar. Kórstjórinn er afar hress kona…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu stórt á móti Ármanni

Snæfell og Ármann áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Fyrir leik voru bæði lið ósigruð, Snæfell hafði unnið fyrstu tvo leikina í deildinni og gestirnir fyrstu þrjá og ljóst að það myndi breytast í leikslok. Heimakonur byrjuðu af krafti og komust í 8:0 og…Lesa meira

true

Bambahúsi komið fyrir á Garðaseli

Síðasta miðvikudag fengu foreldrar barna á leikskólanum Garðaseli á Akranesi að koma í heimsókn og skoða Bambahús sem búið er að koma fyrir á leikskólalóðinni. Þarna verður hægt að rækta grænmeti og blóm meðal annars. Börnin munu verða í aðalhlutverki í nýtingu hússins en þar munu þau hafast við að planta, vökva og passa upp…Lesa meira

true

Blandað nautgripa- og kindahakk var orsök E. coli sýkingar á leikskóla

Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun hefur matarborið smit verið staðfest á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. „Smitvaldur er E. coli baktería af tegund sem kallast STEC og af sermisgerðinni O145. Greining á sýnum hjá Matís staðfesti að sama sermisgerð, þ.e. E. coli O145 fannst bæði í saursýnum frá börnum af leikskólanum og í sýni af hakki sem…Lesa meira

true

Mikil gleði í Pakkhúsinu í Ólafsvík á Hrekkjavöku – Myndasyrpa

Það var mikið um að vera í gamla Pakkhúsinu í Ólafsvík þegar foreldrar og aðstandendur barna höfðu undirbúið Halloween skemmtun fyrir börnin. Mátti sjá margar furðuverur á ferli. Ásamt því að börnin höfðu klætt sig upp var farið í bingó og fleiri leiki. Foreldrar barna í 10. bekk voru með góðgæti fyrir börnin og gesti…Lesa meira

true

Valin í landsliðið í blaki

Alexandra Björg Andradóttir frá Grundarfirði byrjaði í blaki þegar hún var tíu ára og var deginum ljósara að þetta var hennar íþrótt. Í gegnum árin hefur hún staðið sig mjög vel, bæði með barnaflokkum og meistaraflokki og hefur hún mætt á fjölmörg mót með báðum flokkum.  Í sumar var henni boðið að mæta í úrtak…Lesa meira

true

„Við erum sérdeilis heimabökuð og lítið fræg“

Rætt við Álfheiði Leifsdóttur oddvita VG í Norðvesturkjördæmi Álfheiður Leifsdóttir kennari á Sauðárkróki skipar efsta sæti á lista VG fyrir komandi þingkosningar. Tekur hún við keflinu af Bjarna Jónssyni alþingismanni sem sagði sig úr flokknum eftir að slitnaði upp úr samstarfi ríkisstjórnarinnar. Annað sæti á lista flokksins skipar nú Bjarki Hjörleifsson í Stykkishólmi. Blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Þurfum að vinna fyrir hverju einasta atkvæði

Spjallað við Örnu Láru Jónsdóttur oddvita Samfylkingarinnar Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri á Ísafirði skipar efsta sætið á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningarnar í lok mánðarins. Hún hefur lengi verið viðloðandi stjórnmálin og er nú ritari flokksins á landsvísu. Skessuhorn heyrði í Örnu Láru. Fyrst er einfaldlega spurt; hver er oddvitinn og bakgrunnurinn? „Ég er…Lesa meira