Fréttir

true

Hrekkjavaka í Heiðarskóla

Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit hélt upp á Hrekkjavöku í dag og fór blaðamaður Skessuhorns í heimsókn eftir hádegi til að kíkja á nemendur. Margir voru í búningum og einnig í góðu skapi enda tilefni til. Blaðamaður fékk að smella af nokkrum myndum í skólanum og í íþróttahúsinu til að fanga stemninguna sem var bara ansi góð.Lesa meira

true

Hjartað slær fyrir kjördæmið

María Rut Kristinsdóttir leiðir lista Viðreisnar í NV kjördæmi Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var nýverið samþykktur. Oddviti listans er María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar og er frá Flateyri. Annað sætið skipar Edit Ómarsdóttir kerfisfræðingur og deildarstjóri viðskiptaþróunar hjá Advanía, búsett á Akranesi. María Rut kom nýverið við á ritstjórn Skessuhorns. Hún…Lesa meira

true

Flokkur fólksins í Norðvesturkjördæmi birtir framboðslista sinn

Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, leiðir áfram lista flokksins. Annað sætið skipar Lilja Rafney Magnúsdóttir á Suðureyri, fyrrverandi alþingismaður VG. Í þriðja sæti er Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi. Listann skipa: 1. Eyjólfur Ármannsson, alþingismaður, Hrafnabjörgum Þingeyri 2. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður og fyrrv. alþingismaður, Suðureyri 3. Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps…Lesa meira

true

Leikskólabörn fylgdust agndofa með verðlauna óperu í Borgarnesi

Tónlistarskóli Borgarfjarðar bauð öllum nemendum leikskóla Borgarbyggðar upp á fallega fjölskyldusýningu í gær í Hjálmakletti í Borgarnesi. Hópurinn sem stóð að sýningunni heitir Cie Minute Papillion og kemur alla leið frá Frakklandi. Sýningin ber nafnið Eggið en hún hefur hlotið mikið lof víða um lönd. Hún hentar áhorfendum á öllum aldri og af ólíkum uppruna…Lesa meira

true

Ekki verður af samruna Skel og Samkaupa

Undanfarna mánuði hafa Samkaup hf. og Skel fjárfestingarfélag hf. átt í samningaviðræðum um samruna Samkaupa og tiltekinna dótturfélaga Skel, þ.e. Orkunnar og Heimkaupa. „Á síðustu vikum hafa komið fram upplýsingar og upp komið atvik sem hafa orðið til þess að upphaflegar forsendur samruna félaganna voru teknar til endurskoðunar. Niðurstaða þeirra skoðunar var að skynsamlegast væri…Lesa meira

true

Sýnir skipslíkön á Höfða

Í tengslum við Vökudaga á Akranesi er Óttar Guðmundsson með sýningu á 14 skipamódelum sem hann hefur smíðað undanfarin ár. Sýningin er á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi og stendur til og með 3. nóvember nk. Opið er frá 13 til 16 alla daga og eru allir velkomnir.Lesa meira

true

Atvinnuleysi er heldur að aukast

Í september síðastliðnum voru 12.700 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,2%, hlutfall starfandi var 79,2% og atvinnuþátttaka var 83,5%. „Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi tvöfaldaðist á milli mánaða, hlutfall starfandi lækkaði um 2,3 prósentustig og atvinnuþátttaka stóð nánast í stað. Fyrir september mánuð má sjá nokkra breytingu frá undanförnum mælingum á vinnuafli en…Lesa meira

true

Síðasta áfanga Sæunnargötu frestað

Framkvæmdum Borgarbyggðar og Veitna í Sæunnargötu í Borgarnesi miðar vel áfram og gert er ráð fyrir að þessum áfanga ljúki fyrir lok nóvember. Þriðja og síðasta áfanga hefur verið frestað til vors þar sem vetrarveður hefur neikvæð áhrif á endingartíma lagna í opnum skurði. „Við munum láta vita áður en við hefjum vinnu að nýju…Lesa meira

true

Strax farin að skipuleggja hátíð á næsta ári

Skipuleggjendur Lilló harðkjarna tónlistarhátíðar á Akranesi voru hálf meyrir þegar blaðamaður heyrði í þeim hljóðið eftir helgina. „Fyrsta hljómsveitin steig á stokk á föstudag og húsið fylltist af þykkum bassa og ólýsanlegum trommuleik. Hljómsveitin Panil lokuðu svo föstudagskvöldinu með frábærum tónum og var rosalega gott andrúmsloft á tónleikastað,“ segir Bergur Líndal, einn skipuleggjandi hátíðarinnar. „Á…Lesa meira