
Eldgos hófst um þrjá kílómetra norðan við Grindavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Í upphafi var það talsvert stærra og kraftmeira en þau gos sem hafa orðið á svæðinu síðastliðin ár og töldu sérfræðingar að kvikan sem frá því rann væri um 200 rúmmetrar á sekúndu. Nokkuð dró úr krafti gossins þegar leið á nóttina.…Lesa meira








