Fréttir

true

Lögfesta örnám á háskólastigi

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskólamála hefur kynnt í ríkisstjórn fyrirhugaðar breytingar á lögum um háskóla. Breytingafrumvarpið snýr annars vegar að örnámi (e. micro-credentials), sem ekki hefur verið sérstaklega tekið fyrir í lögum um háskóla fram að þessu, og hins vegar að prófgráðum úr diplóma- og viðbótarnámi. „Um 70% þeirra sem útskrifast úr háskólum landsins eru…Lesa meira

true

Foreldrafélag Grunnskóla Grundarfjarðar með piparkökuföndur

Föstudaginn 1. desember lagði piparkökuilm um ganga grunnskólans í Grundarfirði. Ástæðan var piparkökubakstur Foreldrafélags Grunnskóla Grundarfjarðar sem er liður í fjáröflun félagsins. Ófáar plötur af gómsætum piparkökum voru bornar fram sem krakkarnir skreyttu í öllum regnbogans litum. Einhverjar fóru ofan í box til geymslu en ófáar rötuðu beint upp í munna föndrara. Það má.Lesa meira

true

Talsverð aukning mælist í erlendri netverslun

Erlend netverslun nam 2,4 milljörðum króna í októbermánuði síðastliðnum en það er 16,8% aukning frá því í sama mánuði í fyrra. Fataverslun jókst um 8,2% á milli ára og er 1,1 milljarður og þá hefur erlend netverslun í byggingavöruverslunum aukist um 32,6% á milli ára og var 253 milljónir króna. Gögnin eru unnin af Rannsóknasetri…Lesa meira

true

Gamla Landsbankahúsið sett á sölu

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 30. nóvember sl. var rætt um framtíð gamla Landsbankahússins við Suðurgötu 57. Skipulags- og umhverfisráð hafði lagt til við bæjarráð að auglýsa eftir áhugasömum aðilum varðandi framtíðarnotkun á húsinu. Bæjarráð samþykkti að hafin verði sölumeðferð á Suðurgötu 57 þar sem horft verði m.a. til nýtingar á baklóð með eflingu miðbæjarins…Lesa meira

true

Nýtt jólalag Braga Valdimars tileinkað Dölunum

Á sunnudaginn síðastliðinn var haldin aðventuhátíð í Dalabyggð. Þar tóku höndum saman Kirkjukór Dalaprestakalls ásamt Sönghópnum Hljómbroti og sungu nokkur vel valin jólalög. Sr. Snævar Jón Andrjesson las jólasögur á milli söngatriða. Um hundrað manns sóttu viðburðinn sem haldinn var í félagsheimilinu Dalabúð. Á skemmtuninni frumfluttu kórarnir nýtt lag en það heitir Þín allra bestu…Lesa meira

true

Samið við Fish Partner um sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði

Veiðifélag Arnarvatnsheiðar hefur samið við fyrirtækið Fish Partner ehf. um að taka að sér sölu veiðileyfa á heiðina sem og útleigu fimm veiðihúsa. Fish Partner er með leyfi til að starfa sem ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í veiðiferðum með heildarþjónustu fyrir erlenda og innlenda veiðimenn en selur einnig veiðileyfi án þjónustu. Arnarvatnsheiðin er…Lesa meira

true

Enn eitt tapið hjá Snæfelli

Snæfell og Þór Akureyri áttust við í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Fyrir leik var Snæfell enn án sigurs eftir ellefu leiki og Þór Akureyri með sex sigra og fimm töp. Það er ekki hægt að segja að hittni liðanna hafi verið góð í byrjun fyrsta leikhluta því…Lesa meira

true

„Glæpasögurnar eru alltaf vinsælastar“

Rætt við verslunarstjóra Pennans Eymundsson á Akranesi um jólabókasöluna Bókabúðin Penninn Eymundsson er staðsett við Dalbraut 1 á Akranesi og hóf rekstur á Akranesi árið 2006 þegar fyrirtækið keypti Bókabúð Andrésar Níelssonar á Kirkjubraut 54. Árið eftir var starfsemin flutt á Dalbraut 1 og hefur verið þar síðastliðin 16 ár. Katrín Lilja Jónsdóttir hefur verið…Lesa meira

true

Aðventuhátíð Kvenfélagsins Gleym mér ei

Fyrsta sunnudag í aðventu var árlegur aðventudagur Kvenfélagsins Gleym mér ei haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þar kenndi margra grasa og gátu flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Nemendur í 9. bekk voru með kökusölu, strákarnir úr fótboltanum seldu saltfisk og svo var hægt að kaupa glæsilegt handverk á hinum ýmsu sölubásum. Árlegt happdrætti kvenfélagsins var…Lesa meira

true

Skrifað undir verksamning um næsta áfanga í Gufudalssveitinni

Á mánudaginn skrifuðu Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Atli Þór Jóhannsson framkvæmdastjóri Borgarverks undir verksamning um næsta áfanga framkvæmda í Gufudalssveit. Sá áfangi kallast „Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Hallsteinsnes – Skálanes, fyllingar.“ Verkið er fyrsti áfangi í þverun fjarðanna tveggja en brúargerðin verður boðin út síðar. Tilboð í verkið voru opnuð 12. október í haust.…Lesa meira