Fréttir

true

Ungir bændur segja um þýðingarmikil skref að ræða

Samtök ungra bænda fagna þeim tillögum sem starfshópur ráðuneytisstjóra hefur gert um aðgerðir til að koma til móts við þá grafalvarlega stöðu sem íslenskur landbúnaður, og ekki síst ungir bændur, standa frammi fyrir. „Vonandi verður það svo að stjórnvöld muni taka mið af þessari vönduðu ráðgjöf og sýna þannig í verki skilning sinn á gjörbreyttum…Lesa meira

true

Sýna barnasöngleik í Borgarneskirkju

Nemendur Söngleikjadeildar Tónlistarskóla Borgarfjarðar hafa undanfarið verið að æfa barnasöngleikinn Litla stúlkan með eldspýturnar eftir sögu H. C. Andersen. Sýningar verða í vikunni og að þessu sinni verða þær í Borgarneskirkju. Tónlistin er eftir Magnús Pétursson og auk þess verða nokkur þekkt jólalög sungin í verkinu. Á haustönninni hafa 19 nemendur stundað nám í söngleikjadeild…Lesa meira

true

Aðventugluggar fram að jólum

Undanfarin þrjú ár hefur Grundarfjarðarbær verið með jólaglugga á hverjum degi í desember fram til jóla þar sem á morgnana birtist gluggi dagsins á samfélagsmiðlum bæjarins og var oft kapp í fólki að giska hvar glugginn væri. Þetta framtak hófst þegar samkomutakmarkanir voru í gildi en í ár verður breyting á og er bærinn með…Lesa meira

true

Bjartey og Sunna stóðu sig vel á NM 2023 í sundi

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir og Sunna Arnfinnsdóttir úr Sundfélagi Akraness kepptu um helgina á Norðurlandameistaramótinu í sundi sem fram fór í Tartu í Eistlandi. Bjartey synti sig inn í úrslit í 100 metra skriðsundi þar sem hún hafnaði í fjórða sæti og var aðeins 0,13 frá verðlaunapalli eftir mjög jafna keppni um fyrstu fjögur sætin. Bjartey…Lesa meira

true

Rakel Páls og Kjalar gefa út jólalag

Rakel Pálsdóttir og Kjalar Martinsson Kollmar gáfu í lok nóvember út jóladúett sem ber heitið Kósýkvöld í des. Stefán Örn Gunnlaugsson sá um upptökur og hljóðblöndun, Sigurdór Guðmundsson sá um tónjöfnun en lagið samdi Gunnar Ingi Guðmundsson. ,,Lagið Kósýkvöld í des er fjörugt og sykursætt jólalag í 80s stíl. Þessi 80s hljóðheimur rammar tónlistina inn…Lesa meira

true

Jólagleði á Hvanneyri – myndasyrpa

Laugardaginn 2. desember fór fram Jólagleði á Hvanneyri þar sem mátti finna jólamarkað, fjölskylduljósmyndun, tónlistaratriði, jólasveina og ýmislegt fleira. Blaðamaður Skessuhorns var á svæðinu og fangaði stemninguna.Lesa meira

true

Leggja til aðgerðir til stuðnings bændum í fjárhagsörðugleikum

Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Íslands; Svandís Svavarsdóttir matvælaráðaherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, lögðu fyrir ríkisstjórn í morgun tillögur að aðgerðum til stuðnings þeim bændum sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna núverandi efnahagsástands. Tillögurnar byggja á mati hóps sem var skipaður af ríkisstjórn til að fjalla um fjárhagsstöðu landbúnaðar…Lesa meira

true

Opnað var fyrir umferð um Teigsskóg á degi fullveldisins

Umferð var hleypt á nýja veginn um Teigsskóg miðvikudaginn 1. desember. Þar með þarf ekki lengur að aka yfir Hjallaháls. Ekki var nein formleg athöfn þegar vegurinn var opnaður, heldur voru lokunarskiltin einfaldlega færð sitt hvoru vegar við Hjallahálsinn, af nýja veginum og á veginn yfir hálsinn. Verktaki við þessa framkvæmd var Borgarverk. Á vef…Lesa meira

true

Prúttað um Víkurhverfið

Undir lok september í haust var verksamningur vegna Víkurhverfis undirritaður. Samningsaðilar eru Sveitarfélagið Stykkishólmur, Veitur ofh., Míla hf., Rarik ohf. sem saman eru verkkaupar og kaupa vinnu af BB og Sonum ehf. en BB var eina fyrirtækið sem bauð í verkið. Fyrsta tilboði fyrirtækisins var þó hafnað þar sem það var 30,5% yfir kostnaðaráætlun. Á…Lesa meira

true

Grindvískir beitningavélabátar landa í Ólafsvík

Tveir bátar sem gerðir eru út með línubeitningavélar frá Grindavík landa nú afla sínum í Ólafsvík. Þetta eru þeir Gísli Súrsson GK og Auður Vésteins GK en þessir bátar hafa reyndar oft áður verið við veiðar á Breiðafirði. Afli bátanna í gær var ágætur. Gísli Súrsson landaði 9,5 tonnum eftir eina lögn og Auður Vésteins…Lesa meira