Svipmynd frá baráttufundi Samtaka ungra bænda fyrr í haust undir yfirskriftinni Laun fyrir lífi – ungra bænda og íslenskra sveita. Hér eru fulltrúar stjórnmálaflokka í pallborði.

Ungir bændur segja um þýðingarmikil skref að ræða

Samtök ungra bænda fagna þeim tillögum sem starfshópur ráðuneytisstjóra hefur gert um aðgerðir til að koma til móts við þá grafalvarlega stöðu sem íslenskur landbúnaður, og ekki síst ungir bændur, standa frammi fyrir. „Vonandi verður það svo að stjórnvöld muni taka mið af þessari vönduðu ráðgjöf og sýna þannig í verki skilning sinn á gjörbreyttum rekstrarskilyrðum vegna aukinnar vaxtabyrði til viðbótar við verulegar verðhækkanir á öllum aðföngum,“ segir í tilkynningu frá Steinþóri Logi Arnarssyni formanni Félags ungra bænda. Eins og kunnugt er kynntu þrír ráðherrar í gær tillögur um 1600 milljóna króna stuðning ríkisins við tæplega eitt þúsund bændur í landinu vegna þeirrar erfiðu stöðu sem uppi er.

Ungir bændur segja um þýðingarmikil skref að ræða - Skessuhorn