Aðventugluggar fram að jólum

Undanfarin þrjú ár hefur Grundarfjarðarbær verið með jólaglugga á hverjum degi í desember fram til jóla þar sem á morgnana birtist gluggi dagsins á samfélagsmiðlum bæjarins og var oft kapp í fólki að giska hvar glugginn væri. Þetta framtak hófst þegar samkomutakmarkanir voru í gildi en í ár verður breyting á og er bærinn með aðventuglugga. Á hverjum sunnudegi fram til jóla birtast aðventugluggar, sá fyrsti var síðasta  sunnudag og sá fjórði verður á aðfangadag, sem er jafnframt fjórði sunnudagur í aðventu.

Aðventugluggar fram að jólum - Skessuhorn