Fjárrekstur af fjalli. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Ljósm. mm

Leggja til aðgerðir til stuðnings bændum í fjárhagsörðugleikum

Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Íslands; Svandís Svavarsdóttir matvælaráðaherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, lögðu fyrir ríkisstjórn í morgun tillögur að aðgerðum til stuðnings þeim bændum sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna núverandi efnahagsástands. Tillögurnar byggja á mati hóps sem var skipaður af ríkisstjórn til að fjalla um fjárhagsstöðu landbúnaðar á Íslandi og var skipaður ráðuneytisstjórum þessara þriggja ráðuneyta.

Leggja til aðgerðir til stuðnings bændum í fjárhagsörðugleikum - Skessuhorn