
Svipmynd frá því vegagerðin um Teigsskóg var vel á veg komin í sumar. Ljósm. Jón Þórólfur Guðmundsson
Opnað var fyrir umferð um Teigsskóg á degi fullveldisins
Umferð var hleypt á nýja veginn um Teigsskóg miðvikudaginn 1. desember. Þar með þarf ekki lengur að aka yfir Hjallaháls. Ekki var nein formleg athöfn þegar vegurinn var opnaður, heldur voru lokunarskiltin einfaldlega færð sitt hvoru vegar við Hjallahálsinn, af nýja veginum og á veginn yfir hálsinn.