Fréttir

true

Jólatrjáasala verður næstu tvær helgar í Álfholtsskógi

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Skilmannahrepps í Álfholtsskógi verður sunnudaginn 10. desember og helgina 16. – 17. desember frá klukkan 11:30 til 15:30 alla dagana. Jólatrjáasalan er fjáröflunarstarfsemi félagsins til að viðhalda skóginum og bæta við hann en hann er nú „Opinn skógur“ til útivistar allan ársins hring. Fjögur stór jólatré úr skóginum hafa verið sett upp…Lesa meira

true

Frábær aðstaða til nýsköpunar í FSN

Undanfarin misseri hefur aðstaðan í Fjölbrautaskóla Snæfellinga batnað til muna en skólinn hefur sett upp aðstöðu til að taka upp hlaðvörp ásamt því að fjárfest hefur verið í nýjum prenturum og hitapressu. Nú geta nemendur framleitt hlaðvarpsþætti um málefni líðandi stundar eða jafnvel prentað á fatnað, fána og þess háttar í hitapressunni. Einnig er kominn…Lesa meira

true

Diana Arcila sigraði í ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar

Grundarfjarðarbær hefur síðustu ár efnt til ljósmyndasamkeppni þar sem úrslitin hafa verið kunngjörð á aðventudegi Kvenfélagsins ár hvert. Í ár var engin undantekning á þeirri reglu og komu forsvarsmenn menningarnefndar bæjarins upp á svið og veittu verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Diana Arcila var í fyrsta sæti, Rut Rúnarsdóttir í öðru sæti og Sólveig Stefanía…Lesa meira

true

Ellefta tap Snæfells kom á móti Grindavík

Grindavík og Snæfell mættust í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gær og var leikurinn spilaður í Smáranum í Kópavogi sökum jarðhræringa á Reykjanesi. Eins og kannski við var að búast miðað við stöðu liðanna í deildinni var um hálfgerða einstefnu að ræða og tóku Grindavíkurkonur strax öll völd á vellinum. Þær komust í 9:0…Lesa meira

true

Varðskipið Þór átti viðkomu í Grundarfirði

Varðskipið Þór hefur að undanförnu verið við eftirlit á miðunum út af Vesturlandi og víðar. Á laugardaginn kom skipið til Grundarfjarðarhafnar þar sem það lagðist að bryggju. Fá skip voru á sjó á þessum tíma og því minni þörf á eftirliti. Líklega kærkomin hvíld fyrir áhöfnina frá ölduróti hafsins að binda landfestar og komast aðeins…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir Hrunamönnum í hörkuleik

Hrunamenn og Snæfell mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn spilaður á Flúðum. Fyrir leik voru bæði lið í neðri hlutanum, Snæfell með fjögur stig og Hrunamenn með tvö. Liðin skiptust á að hafa forystu í fyrsta leikhluta, Hrunamenn voru þó ívið sterkari og leiddu með fjórum stigum þegar honum…Lesa meira

true

Valdir í æfingahóp U20 landsliðsins í körfu

Fyrir helgi var tilkynnt að fjórir ungir Skagamenn hafa verið valdir til að taka þátt í æfingahópi U20 landsliðs Íslands í körfubolta fyrir Norðurlanda- og Evrópumót sem fara fram næsta sumar. Þetta eru þeir Aron Elvar Dagson, Júlíus Duranona, Styrmir Jónasson og Þórður Freyr Jónsson. Þeir verða allir hluti af úrtakshópi sem undirbýr sig fyrir…Lesa meira

true

Skallagrímur vann ÍA í jöfnum leik

Það var stuð og býsna góð stemning eins og oftast þegar lið Skallagríms og ÍA áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið. Yfir tvö hundruð manns mættu í Fjósið í Borgarnesi til að horfa á Vesturlandsslaginn og styðja við bakið á sínum mönnum. Þeir fengu eitthvað fyrir peninginn og snúðinn því leikurinn…Lesa meira

true

Aðventuhátíð Kvenfélagsins Gleym mér ei

Í gær á fyrsta sunnudegi í aðventu var árlegur aðventudagur Kvenfélagsins Gleym mér ei haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þar kenndi margra grasa og gátu flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Nemendur í 9. bekk voru með kökusölu, strákarnir úr fótboltanum seldu saltfisk og svo var hægt að kaupa glæsilegt handverk á hinum ýmsu sölubásum. Árlegt…Lesa meira

true

Vaxandi líkur á að dagar skólahalds á Bifröst verði brátt taldir

Fyrr í haust auglýsti Háskólinn á Akureyri embætti rektors skólans laust til umsóknar. Ráðið verður í embættið til fimm ára frá 1. júlí 2024. Fimm sóttu um stöðuna. Athygli vekur að meðal umsækjenda er Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst, en hún talar fyrir aukinni samvinnu eða sameiningu háskóla til að þeir megi eflast.…Lesa meira