
Vaxandi líkur á að dagar skólahalds á Bifröst verði brátt taldir
Fyrr í haust auglýsti Háskólinn á Akureyri embætti rektors skólans laust til umsóknar. Ráðið verður í embættið til fimm ára frá 1. júlí 2024. Fimm sóttu um stöðuna. Athygli vekur að meðal umsækjenda er Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst, en hún talar fyrir aukinni samvinnu eða sameiningu háskóla til að þeir megi eflast.