
Þór í Grundarfirði. Ljósm. tfk
Varðskipið Þór átti viðkomu í Grundarfirði
Varðskipið Þór hefur að undanförnu verið við eftirlit á miðunum út af Vesturlandi og víðar. Á laugardaginn kom skipið til Grundarfjarðarhafnar þar sem það lagðist að bryggju. Fá skip voru á sjó á þessum tíma og því minni þörf á eftirliti. Líklega kærkomin hvíld fyrir áhöfnina frá ölduróti hafsins að binda landfestar og komast aðeins á fast land. Skipið hélt svo aftur út á miðin í gærkvöldi eftir að hafa notið veðurblíðunnar á Snæfellsnesi.