
Kirkjukór Dalaprestakalls og Sönghópurinn Hljómbrot, ásamt kórstjóranum Sigurbjörgu I. Kristínardóttur og meðleikurum. Meðleikarar á tónleikunum voru Sigrún Hanna Sigurðardóttir sem spilaði á þverflautu og Kristján Ingi Arnarsson sem spilaði á hljómborð. Ljósm. Ása María Hauksdóttir.
Nýtt jólalag Braga Valdimars tileinkað Dölunum
Á sunnudaginn síðastliðinn var haldin aðventuhátíð í Dalabyggð. Þar tóku höndum saman Kirkjukór Dalaprestakalls ásamt Sönghópnum Hljómbroti og sungu nokkur vel valin jólalög. Sr. Snævar Jón Andrjesson las jólasögur á milli söngatriða. Um hundrað manns sóttu viðburðinn sem haldinn var í félagsheimilinu Dalabúð.