
Þeir Ásgeir Veigar Sólbergsson, Haukur Smári Ragnarsson og Reynir Már Jónsson buðu upp á gómsætt sætmeti til styrktar bekkjarferðalags þeirra á næsta ári.
Aðventuhátíð Kvenfélagsins Gleym mér ei
Fyrsta sunnudag í aðventu var árlegur aðventudagur Kvenfélagsins Gleym mér ei haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þar kenndi margra grasa og gátu flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Nemendur í 9. bekk voru með kökusölu, strákarnir úr fótboltanum seldu saltfisk og svo var hægt að kaupa glæsilegt handverk á hinum ýmsu sölubásum. Árlegt happdrætti kvenfélagsins var á dagskrá ásamt söngatriðum. Svo var að sjálfsögðu boðið upp á dýrindis vöfflur og meðlæti.