
Gamla Landsbankahúsið við Suðurgötu 57. Ljósm. vaks
Gamla Landsbankahúsið sett á sölu
Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 30. nóvember sl. var rætt um framtíð gamla Landsbankahússins við Suðurgötu 57. Skipulags- og umhverfisráð hafði lagt til við bæjarráð að auglýsa eftir áhugasömum aðilum varðandi framtíðarnotkun á húsinu.