Kristján Páll Rafnsson framkvæmdastjóri Fish Partner og Guðmundur Kristinsson á Grímsstöðum, formaður Veiðifélag Arnarvatnsheiðar, handsala samninginn. Ljósm. Fishpartner.is

Samið við Fish Partner um sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði

Veiðifélag Arnarvatnsheiðar hefur samið við fyrirtækið Fish Partner ehf. um að taka að sér sölu veiðileyfa á heiðina sem og útleigu fimm veiðihúsa. Fish Partner er með leyfi til að starfa sem ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í veiðiferðum með heildarþjónustu fyrir erlenda og innlenda veiðimenn en selur einnig veiðileyfi án þjónustu.