Fréttir

true

Tveir Borgnesingar luku 100 km fjallahlaupi á Spáni

Borgnesingarnir Jósep Magnússon og Kristinn Óskar Sigmundsson kepptu um helgina í rúmlega 100 km fjallahlaupi á Spáni, nánar tiltekið hlaupi sem nefnist Costa Blanca Trails 103. Hlaupið byrjar og endar í Finestrat skammt norður af Alicante. Hlaupaleiðin er afar stórgrýtt og liggur um stórskorið fjalllendi með giljum og gljúfrum utan í snarbröttum hlíðum. Samanlögð hækkun…Lesa meira

true

Stutt aðventa í ár

Að þessu sinni er aðfangadagur á sunnudegi en þegar það gerist lenda aðfangadagur og síðasti sunnudagur í aðventu á sama deginum. Fyrsti sunnudagur í aðventu þetta ár verður því sunnudaginn 3. desember, annar í aðventu 10. desember, þriðji í aðventu 17. desember og fjórði 24. desember. Þetta er áréttað í ljósi þess að ýmsir standa…Lesa meira

true

Barnaþing var haldið í Grunnskóla Borgarfjarðar í gær

Fyrsta Barnaþing Grunnskóla Borgarfjarðar var haldið í Þinghamri á Varmalandi á alþjóðlegum réttindadegi barna í gær, mánudaginn 20. nóvember. Barnaþing er verkefni á vegum UNICEF sem felst í að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Stefán Broddi Guðjónsson sveitastjóri Borgarbyggðar setti þingið og Ævar Benediksson, eða Ævar vísindamaður, flutti hressilegt erindi fyrir krakkana en hann…Lesa meira

true

Gul viðvörun tekur gildi eftir hádegi í dag

Spáð er suðvestan hvassviðri eftir hádegi í dag og fram á kvöldið og slæmu ferðaveðri. Á spásvæðunum Breiðafirði og Faxaflóa verða 15-20 m/s og búast má við talsverðum éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum inn til landsins og til fjalla. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar. Fólki er bent á að…Lesa meira

true

Nýliðarnir rassskelltu sér eldri spilara

Í gærkvöldi var þriðja af fjórum umferðum spiluð í aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Mótið er fjögurra kvölda keppni, en besti árangur þriggja kvölda gildir til úrslita. Í gær voru það ungstirnin í hópnum, þeir Fjölnir Jónsson og Jónmundur Magnús Guðmundsson sem hlutu langbesta skor kvöldsins, eða 67,56%. Um leið blanda þeir sér í toppbaráttu…Lesa meira

true

Tífalt meiri eftirspurn en framboð af greiðslumarki í sauðfé

Innlausnarmarkaður þessa árs með greiðslumark í sauðfé var haldinn 15. nóvember síðastliðinn. Matvælaráðuneytinu bárust 136 umsóknir um kaup á greiðslumarki og 29 umsóknir um sölu. Innlausnarverð ársins jafngildir beingreiðslum næstu tveggja ára og er 10.531 krónur á ærgildi. Sama verð gildir fyrir kaup og sölu. Alls var óskað eftir 35.638 ærgildum til kaups. Til ráðstöfunar…Lesa meira

true

Nýjar hljóðbækur fyrir börn gefnar út til stuðnings munaðarleysingjahælis í Afríku

„Við kynnum nýja útgáfu hljóðbóka ætlaðar börnum. Útgáfan þjónar þeim göfuga tilgangi að styðja við rekstur og uppbyggingu munaðarleysingjahælis í Afríku. Við köllum útgáfuna: „Bókaklúbb Barnanna,“ því um safn bóka er að ræða. Nú þegar eru þrír flokkar í boði.  Sögurnar af Maddý og Míló, hundinurinn Brúnó og Dýrin í sveitinni. Bætt verður nýjum bókum…Lesa meira

true

Hugmyndir kynntar um heimsóknahönnun í Andakíl

Miðvikudagskvöldið 15. nóvember fór fram íbúafundur á Hvanneyri þar sem Jón Björnsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, kynnti hugmyndir um svokallaða heimsóknahönnun fyrir friðlandið í Andakíl. Um er að ræða aðferð sem ekki hefur þekkst hérlendis áður en fyrirmyndin er sótt til Noregs þar sem hún hefur verið notuð á fjölmörgum friðlýstum svæðum. Verkefnið í Andakíl verður…Lesa meira

true

Stefnt er að sameiginlegri miðstöð lögreglu og slökkviliðs á Fitjum

Viðræður um byggingu nýrrar sameiginlegrar miðstöðvar lögreglu og slökkviliðs í Borgarnesi eru komnar á góðan rekspöl. Stefnt er á að þessi nýja miðstöð verði á Fitjum, á lóð við hlið nýju björgunarmiðstöðvar Brákar. Vilji er til þess í dómsmálaráðuneytinu að starfsstöð lögreglu verði færð á hentugri stað en í núverandi lögreglustöð við Bjarnarbraut og eru…Lesa meira

true

Vel tekið á því á Íslandsmóti í klassískum kraftlyftingum

Kraftlyftingafélag Akraness hélt Íslandsmót unglinga og öldunga í klassískum kraftlyftingum síðasta laugardag. Félagið var í góðu samstarfi við Ægi Gym, sem sá um að útvega húsnæði fyrir mótið í aðstöðu þeirra að Hafnarbraut 8 á Akranesi, ásamt því að sjá um skipulag og uppsetningu mótsins. Met þátttaka var á mótinu en 81 keppandi var skráður…Lesa meira