
Stutt aðventa í ár
Að þessu sinni er aðfangadagur á sunnudegi en þegar það gerist lenda aðfangadagur og síðasti sunnudagur í aðventu á sama deginum. Fyrsti sunnudagur í aðventu þetta ár verður því sunnudaginn 3. desember, annar í aðventu 10. desember, þriðji í aðventu 17. desember og fjórði 24. desember. Þetta er áréttað í ljósi þess að ýmsir standa í þeirri meiningu að fyrsti sunnudagur í aðventu sé um næstu helgi.