Fréttir

true

Lauga færir sakamálaleikrit á fjalirnar

Leikfélagið Lauga frumsýnir í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík 17. nóvember nk. leikritið Bréf frá Önnu. Er þetta önnur sýningin sem leikfélagið setur upp en það var stofnað á síðasta ári. Að þessu sinni fór félagið í allt aðra átt við val á verki til sýningar, en fyrsta sýning félagsins var farsinn Sex í sama rúmi…Lesa meira

true

Minningarsýning opnuð í Safnahúsi

Síðastliðinn laugardag var opnuð ný sýning í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar eru til sýnis verk eftir Stefán Geir Karlsson – In memoriam. Sýndir eru skúlptúrar byggðir á sögu Egils Skallagrímssonar sem Stefán Geir skapaði skömmu áður en hann féll frá. Auk þess málverk frá því hann lét draum sinn rætast og stundaði myndlistarnám…Lesa meira

true

Hittast í Karlakaffi í Vinaminni

Á fyrsta miðvikudegi í hverjum mánuði klukkan 13:30 kemur hópur karla saman í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi. Að jafnaði er fenginn gestur til að ræða við hópinn um starf sitt, áhugamál eða lífsferil og svara síðan fyrirspurnum. Á eftir eru svo kaffiveitingar og áframhaldandi spjall. Það er Ólöf Margrét Snorradóttir prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli…Lesa meira

true

Sigurmyndin í ljósmyndasamkeppni Símenntunar

Þær Tanja Ósk Bjarnadóttir og Þórunn Birna Guðmundsdóttir báru sigur úr býtum í ljósmyndasamkeppni Símenntunar sem haldin var í sumar. Þema keppninnar var „Fjölmenning“ og bárust margar skemmtilegar myndir. Dómnefndin sem skipuð var af starfsfólki Símenntunar var sammála um að mynd þeirra Þórunnar og Tönju „Lífið í lit“ sýndi sannarlega fjölmenningu og fjölbreytni en hún…Lesa meira

true

Silfur á Skagann á Íslandsmóti í tvímenningi í keilu

Helgina 4. og 5. nóvember fór fram Íslandsmót í tvímenningi í keilu í Egilshöll. Íslandsmótið var fremur erfitt þar sem langur olíuburður er á annarri brautinni en stuttur á hinni og reynir því á kænsku og heppni keppanda. ÍA átti fjögur pör af 17 á mótinu. Forkeppni og milliriðill fóru fram á laugardeginum og komust…Lesa meira

true

Markaður Félagsstarfs Akraneskaupstaðar haldinn – Myndasyrpa

Síðasta föstudag var haldinn markaður á Dalbraut 4 á Akranesi þar sem mikið úrval var til sölu af fallegu handverki. Þá var einnig boðið upp á vöfflur og heitt kaffi var á könnunni. Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari Skessuhorns var á ferðinni og tók nokkrar myndir á markaðnum af gestum og gangandi.Lesa meira

true

Hefja í kvöld aðaltvímenning BB

Í kvöld klukkan 20 hefst aðaltvímenningur Bridgefélags Borgarfjarðar. Um er að ræða fjögur stök kvöld þar sem árangur þriggja bestu telur til úrslita. Spilað er í Logalandi í Reykholtsdal og eru allir velkomnir. Á meðfylgjandi mynd eru sigurvegarar í mótinu fyrir ári síðan.Lesa meira

true

Fjórða tap Snæfells í röð

Leikmenn Snæfells í körfuknattleik gerðu sér ferð í höfuðborgina í gær þegar þeir léku á móti Ármanni í fyrstu deild karla og var leikurinn í Laugardalshöllinni. Snæfellingar fundu ekki alveg fjölina sína í byrjun leiks og lentu undir 10:2. Þeir náðu síðan að laga aðeins stöðuna með því að skora næstu fimm stig og staðan…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Sindra í sveiflukenndum leik

Skallagrímur tók á móti liði Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Skallagrímsmenn byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu fyrstu sjö stig leiksins en gestirnir vöknuðu af værum blundi og höfðu náð að jafna metin í 8:8 um miðjan fyrsta leikhluta. Þegar leikhlutanum lauk var enn…Lesa meira

true

Grenndargámar settir upp á þremur stöðum í Stykkishólmi

Grenndargámar hafa nú verið settir upp á þremur stöðum í Stykkishólmi. Frá því er greint á upplýsingasíðu sveitarfélagsins. Í gámana má skila málmi, gleri og textíl til endurvinnslu. Gámarnir eru staðsettir við Skúlagötu, Lágholt og Búðanes. Þessu má skila í grenndargámana: Málmar: Litlir og hreinir málmhlutir eins og niðursuðudósir, krukkulok og sprittkertakoppar. Gler: Hrein ílát…Lesa meira