Fréttir

true

Ætla að efla íþróttastarf á landsvísu

Stefnt er að því að setja á laggirnar átta starfsstöðvar á landsvísu sem munu þjónusta öll 25 íþróttahéruð landsins. Það verður gert með þátttöku stjórnvalda, ÍSÍ og UMFÍ. Horft er til samlegðaráhrifa við svæðisskipt verkefni ríkis og sveitarfélaga svo sem skólaþjónustu, farsæld barna og æskulýðsstarfi. „Markmiðið er að efla íþróttahéruð með því að koma á…Lesa meira

true

Byrjað að byggja nýtt verkstæðishús í stað þess sem brann

Húsnæði Bifreiðaþjónustu Snæfellsness brann til kaldra kola 8. mars 2022 og varð altjón á húsnæði og öllu sem inni í því var. Rústirnar voru fjarlægðar og hefur lóðin staðið tóm undanfarna mánuði. Nú verður breyting þar á því að verktakar eru nú önnum kafnir við að slá upp steypumótum fyrir sökkul undir nýtt verkstæði sem…Lesa meira

true

500. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps verður á morgun

500. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps verður haldinn á morgun, miðvikudag. Reykhólahreppur í núverandi mynd var stofnaður 4. júlí 1987. Hann varð því 36 ára sl. sumar. Í fyrstu sveitarstjórn var þess gætt að allir hrepparnir sem voru sameinaðir ættu fulltrúa, nema Múlasveit reyndar, en þar var enginn búsettur þegar þarna var komið. Frá Reykhólahreppi „gamla“ voru…Lesa meira

true

Nýtt útivistarsvæði í Melahverfi

Framkvæmdum við nýtt útivistarsvæði í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit, sem nefnist Vinavöllur, er nú að mestu lokið. Á Vinavelli má finna körfuboltavöll, ærslabelg, ýmis leiktæki fyrir alla aldurshópa, grillskála með góðu útigrilli, bekkjum og borðum, auk þess sem gott svið og áhorfendapallur er á svæðinu. Fram kemur á vef Hvalfjarðarsveitar að svæðið hafi upp á margt…Lesa meira

true

Framkvæmdahugur hjá hóteleigendum í Borgarbyggð

Í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar 3. nóvember sl. kemur fram að nú liggja fyrir umsóknir um stækkanir á tveimur hótelum í héraðinu, en Hótel Húsafell og Hótel Hamar hyggjast stækka húsakost og fjölga gistirýmum. Hótel Hamar hefur sótt um leyfi fyrir átta nýjum par-/frístundahúsum sem innihalda samtals 16 gistirými ásamt pottasvæði og annarri aðstöðu…Lesa meira

true

Íslandspóstur hættir um áramótin að dreifa fjölpósti

Um áramótin hættir Íslandspóstur alfarið að dreifa fjölpósti. Fjöldreifingu var hætt á suðvesturhorni landsins árið 2020 en fjölpósti var hins vegar áfram dreift á landsbyggðinni, einkum þar sem ekki var kostur á öðrum dreifingaraðila. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að hætta þeirri dreifingu einnig. Fram kemur á vefsíðunni posturinn.is að í gegnum tíðina hafi…Lesa meira

true

Tilkynnt um ísbjarnarspor á Okinu

Veiðimaður tilkynnti nýverið Lögreglunni á Vesturlandi um að hann hafi séð spor á jöklinum Oki í Borgarfirði sem gætu mögulega verið eftir ísbjörn. Málið er til áframhaldandi skoðunar hjá lögreglu en vegna staðsetningar er þó talið ósennilegt af landfræðilegum ástæðum að um ísbjörn hafi verið að ræða, þ.e. að þetta sé of langt frá sjó…Lesa meira

true

Nýtt dvalarheimili var formlega vígt í Stykkishólmi – Myndir frá opnun

Nýtt dvalar- og hjúkrunarheimili var formlega vígt í Stykkishólmi í síðustu viku en heimilið er staðsett í núverandi byggingu Heilbrigðisstofnunar Versturlands, í eldri hluta St. Franciskusspítalans. Heilbrigðisráðuneytið og Stykkishólmsbær stóðu að uppbyggingunni en Skipavík sá um framkvæmdir, sem staðið hafa yfir síðan í júlí 2021. Hjúkrunarheimilið er á annarri og þriðju hæð hússins og samanstendur…Lesa meira

true

Nemendur á miðstigi grunnskólans gera góðverk

Hluti nemenda í Grunnskóla Stykkishólms á miðstigi, þ.e. 5.-7. bekkur, hafa valið sér áfanga sem hefur það að markmiði að vinna góðverk fyrir samborgara sína. Þessi föngulegi hópur klæðir sig vel upp og heldur út hvernig sem viðrar alla mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8:10 til 9:30 næstu tvær vikurnar. Hópurinn hefur það markmið…Lesa meira

true

Útgáfuhóf Gunnars Helgasonar í Pennanum

Rithöfundurinn Gunnar Helgason var í heimsókn í Pennanum Eymundsson á Akranesi á föstudaginn þar sem hann var að kynna nýjustu barnabók sína, Bannað að drepa, sem er framhald metsölubókanna Bannað að eyðileggja og Bannað að ljúga. Bókin er sú þriðja og síðasta í seríunni um Alexander Daníel Hermann Dawidsson og fjölskyldu hans. Bókin er myndskreytt…Lesa meira