Verktakar að hífa steypumót á staðinn og verið að slá upp. Ljósmyndir: tfk

Byrjað að byggja nýtt verkstæðishús í stað þess sem brann

Húsnæði Bifreiðaþjónustu Snæfellsness brann til kaldra kola 8. mars 2022 og varð altjón á húsnæði og öllu sem inni í því var. Rústirnar voru fjarlægðar og hefur lóðin staðið tóm undanfarna mánuði. Nú verður breyting þar á því að verktakar eru nú önnum kafnir við að slá upp steypumótum fyrir sökkul undir nýtt verkstæði sem mun rísa á lóðinni.

Byrjað að byggja nýtt verkstæðishús í stað þess sem brann - Skessuhorn