Hótel Húsafell. Ljósm. úr safni/mm

Framkvæmdahugur hjá hóteleigendum í Borgarbyggð

Í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar 3. nóvember sl. kemur fram að nú liggja fyrir umsóknir um stækkanir á tveimur hótelum í héraðinu, en Hótel Húsafell og Hótel Hamar hyggjast stækka húsakost og fjölga gistirýmum. Hótel Hamar hefur sótt um leyfi fyrir átta nýjum par-/frístundahúsum sem innihalda samtals 16 gistirými ásamt pottasvæði og annarri aðstöðu en byggingarsvæðið mun verða stækkað til suðurs. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er hugur í eigendum að byrja á framkvæmdum næsta vor. Hótel Húsafell óskar eftir að stækka byggingarreit til vesturs og byggja þar viðbyggingu með 12 herbergjum. Verður þá heildarfjöldi herbergja 60 talsins eftir stækkun en ekki er komin tímarammi á framkvæmdina.

Framkvæmdahugur hjá hóteleigendum í Borgarbyggð - Skessuhorn