Nýja Dvaló fékk nafnið Dvalar- og hjúkrunarheimilið Systraskjól en er það staðsett í gamla hluta St. Franciskusspítalans í Stykkishólmi sem nú hefur verið endurgerður. Texti og myndir: Steinunn Þorvaldsdóttir

Nýtt dvalarheimili var formlega vígt í Stykkishólmi – Myndir frá opnun

Nýtt dvalar- og hjúkrunarheimili var formlega vígt í Stykkishólmi í síðustu viku en heimilið er staðsett í núverandi byggingu Heilbrigðisstofnunar Versturlands, í eldri hluta St. Franciskusspítalans. Heilbrigðisráðuneytið og Stykkishólmsbær stóðu að uppbyggingunni en Skipavík sá um framkvæmdir, sem staðið hafa yfir síðan í júlí 2021. Hjúkrunarheimilið er á annarri og þriðju hæð hússins og samanstendur af 18 einstaklingsrýmum sem hvert um sig hefur sér baðherbergi en eldhús og setustofur eru sameiginlegar. Heildarstærð heimilisins eru 1.280 fermetrar.

Nýtt dvalarheimili var formlega vígt í Stykkishólmi - Myndir frá opnun - Skessuhorn