
Núverandi sveitarstjórn: Vilberg Þráinsson, Árný Huld Haraldsdóttir oddviti, Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Ösp Einarsdóttir varaoddviti og Hrefna Jónsdóttir.
500. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps verður á morgun
500. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps verður haldinn á morgun, miðvikudag. Reykhólahreppur í núverandi mynd var stofnaður 4. júlí 1987. Hann varð því 36 ára sl. sumar. Í fyrstu sveitarstjórn var þess gætt að allir hrepparnir sem voru sameinaðir ættu fulltrúa, nema Múlasveit reyndar, en þar var enginn búsettur þegar þarna var komið.