
Grenndargámar fyrir textíl, gler og málma við Búðarnes. Ljósm. Stykkishólmur.
Grenndargámar settir upp á þremur stöðum í Stykkishólmi
Grenndargámar hafa nú verið settir upp á þremur stöðum í Stykkishólmi. Frá því er greint á upplýsingasíðu sveitarfélagsins. Í gámana má skila málmi, gleri og textíl til endurvinnslu. Gámarnir eru staðsettir við Skúlagötu, Lágholt og Búðanes.