Gestir við opnun sýningarinnar á laugardaginn. Ljósm. aðsend

Minningarsýning opnuð í Safnahúsi

Síðastliðinn laugardag var opnuð ný sýning í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar eru til sýnis verk eftir Stefán Geir Karlsson - In memoriam. Sýndir eru skúlptúrar byggðir á sögu Egils Skallagrímssonar sem Stefán Geir skapaði skömmu áður en hann féll frá. Auk þess málverk frá því hann lét draum sinn rætast og stundaði myndlistarnám í Danmörku. Sýningarstjóri er Ilmur Stefánsdóttir.

Minningarsýning opnuð í Safnahúsi - Skessuhorn