Verðlaunamyndin.

Sigurmyndin í ljósmyndasamkeppni Símenntunar

Þær Tanja Ósk Bjarnadóttir og Þórunn Birna Guðmundsdóttir báru sigur úr býtum í ljósmyndasamkeppni Símenntunar sem haldin var í sumar. Þema keppninnar var „Fjölmenning“ og bárust margar skemmtilegar myndir. Dómnefndin sem skipuð var af starfsfólki Símenntunar var sammála um að mynd þeirra Þórunnar og Tönju „Lífið í lit“ sýndi sannarlega fjölmenningu og fjölbreytni en hún er tekin á bókasafni Akraness og er af litríkum barnabókum á mismunandi tungumálum.

Sigurmyndin í ljósmyndasamkeppni Símenntunar - Skessuhorn