Hittast í Karlakaffi í Vinaminni

Á fyrsta miðvikudegi í hverjum mánuði klukkan 13:30 kemur hópur karla saman í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi. Að jafnaði er fenginn gestur til að ræða við hópinn um starf sitt, áhugamál eða lífsferil og svara síðan fyrirspurnum. Á eftir eru svo kaffiveitingar og áframhaldandi spjall. Það er Ólöf Margrét Snorradóttir prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli sem heldur utan um þennan hitting sem og annað félagsstarf með eldra fólki í söfnuðinum.

Hittast í Karlakaffi í Vinaminni - Skessuhorn