
Markaður Félagsstarfs Akraneskaupstaðar haldinn – Myndasyrpa
Síðasta föstudag var haldinn markaður á Dalbraut 4 á Akranesi þar sem mikið úrval var til sölu af fallegu handverki. Þá var einnig boðið upp á vöfflur og heitt kaffi var á könnunni. Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari Skessuhorns var á ferðinni og tók nokkrar myndir á markaðnum af gestum og gangandi.