Fréttir

true

Fjölnir sigraði Skagamenn í spennuleik

ÍA og Fjölnir áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum á Akranesi. Mikil barátta var í fyrsta leikhluta, jafnt á flestum tölum og aðeins tvö stig skildu liðin að þegar honum lauk, staðan 15:17 fyrir Fjölni. Gestirnir voru sterkari í byrjun annars leikhluta og leiddu…Lesa meira

true

Senda ákall til stjórnvalda vegna bágrar stöðu bænda

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í liðinni viku ályktun sem um leið er ákall til yfirvalda vegna alvarlegrar stöðu landbúnaðar á Íslandi og bágra starfsskilyrða í greininni. Ályktunin er svohljóðandi í heild sinni: „Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hvetur matvælaráðherra, ríkisstjórnina og þingmenn alla til að bregðast við alvarlegri stöðu landbúnaðar. Framtíð landbúnaðar…Lesa meira

true

Endurnýja ristahlið við Kverná

Vegagerðin er að láta skipta um ristarhliðið austanmegin við Grundarfjörð þar sem það gamla var orðið lélegt. Verktakafyrirtækið Stafnafell sá um að fjarlægja gömlu grindurnar úr veginum og fylla uppí með efni. Svo verður sett nýtt ristarhlið í vor þegar veturinn víkur.Lesa meira

true

RKÍ óskar eftir þátttakendum í verkefnið Símavinir

Rauði kross Íslands er með í gangi svokölluð Vinaverkefni. „Markmið allra Vinaverkefna RKÍ er að rjúfa félagslega einangrun fólks með því að veita félagsskap/nærveru og hlýju. Sjálfboðaliðastarfið er unnið út frá þörfum notanda hverju sinni og útfærslur verkefnisins eru því fjölbreyttar,“ segir í tilkynningu þar sem fólk er hvatt til að sækja um að gerast…Lesa meira

true

Forgjafarmót á Hamri í október

Pútthópur Hamars í Borgarbyggð æfir eins lengi úti og veður leyfir. Forgjafarmót var haldið 26. október. Til leiks mættu 15 karlar og 14 konur. Sigurvegari kvenna án forgjafar varð Katrín R. Björnsdóttir með 63 högg. Önnur var Ásdís B. Geirdal með 66 högg og þriðja Rannveig Lind Egilsdóttir með 67 högg. Hlutskörpust með forgjöf var…Lesa meira

true

Addi bauð til veislu í tilefni starfsafmælisins

Guðmundur Örn Björnsson, sem einatt er kallaður Addi, bauð samstarfsfólki sínu og vinum til veislu á föstudaginn. Tilefnið var að 1. júlí í sumar hafði hann starfað í Fjöliðjunni á Akranesi í þrjátíu ár. Veisluna vildi hann hins vegar ekki halda fyrr en allir væru komnir úr sumarleyfum. Addi og nafni hans Guðmundur Þór hafa…Lesa meira

true

Vara við vetrarfærð á Steingrímsfjarðarheiði og víðar

Vegagerðin bendir á að hvöss norðaustanátt verður í dag með snjókomu á fjallvegum um norðanvert landið og víða erfið akstursskilyrði í lélegu skyggni, einkum á svæðinu frá Öxnadalsheiði og austur að Fagradal, og einnig á Steingrímsfjarðarheiði. Hægari vindur og úrkomuminna á morgun.Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til einkarekinna fjölmiðla

Úthlutunarnefnd um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár, með ákvörðun styrkja til einkarekinna fjölmiðla vegna rekstrarársins 2022. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra. Alls bárust 28 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 962 milljónir kr. Þremur umsóknum var synjað…Lesa meira

true

Greiðslumark í mjólk verður aukið um áramótin

Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur samþykkt að greiðslumark mjólkur á árinu 2024 verði 151,5 milljónir lítra. Það nemur 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra. Hækkun greiðslumarksins er tilkomin vegna aukinnar sölu mjólkurafurða. Bændum verður heimilt að setja fyrrgreint magn á innanlandsmarkað á næsta ári og fá opinbert lágmarksverð fyrir sem nú nemur tæpum 130…Lesa meira

true

Íslandsbanki kominn á nýjan stað við Dalbrautina

Útibú Íslandsbanka á Akranesi var í morgun opnað í nýju rými við Dalbraut 1, um 30 metrum austar en það var. Gestum og viðskiptavinum var boðið upp á ilmandi vöfflur og kaffi í tilefni dagsins. Þrátt fyrir að núverandi aðstaða útibúsins sé um þriðjungi minni en á gamla staðnum er ágætlega rúmt á mannskapnum. Unnið…Lesa meira