Greiðslumark í mjólk verður aukið um áramótin

Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur samþykkt að greiðslumark mjólkur á árinu 2024 verði 151,5 milljónir lítra. Það nemur 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra. Hækkun greiðslumarksins er tilkomin vegna aukinnar sölu mjólkurafurða. Bændum verður heimilt að setja fyrrgreint magn á innanlandsmarkað á næsta ári og fá opinbert lágmarksverð fyrir sem nú nemur tæpum 130 krónum á lítra.

Greiðslumark í mjólk verður aukið um áramótin - Skessuhorn