
Styrkjum úthlutað til einkarekinna fjölmiðla
Úthlutunarnefnd um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár, með ákvörðun styrkja til einkarekinna fjölmiðla vegna rekstrarársins 2022. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra. Alls bárust 28 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 962 milljónir kr. Þremur umsóknum var synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi. Stuðningurinn skal að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda, en um er að ræða launa- og verktakakostnað við framleiðslu efnis, umbrot blaða og slíkt. Því ræðst endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna hverju sinni. Auk þess fá að þessu sinni staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins 20% álag á upphæð styrks. Til úthlutunar voru 470,5 milljónir króna.