Guðmundur Örn Björnsson, Addi, hefur nú unnið í ríflega 30 ár í Fjöliðjunni. Ljósm. mm

Addi bauð til veislu í tilefni starfsafmælisins

Guðmundur Örn Björnsson, sem einatt er kallaður Addi, bauð samstarfsfólki sínu og vinum til veislu á föstudaginn. Tilefnið var að 1. júlí í sumar hafði hann starfað í Fjöliðjunni á Akranesi í þrjátíu ár. Veisluna vildi hann hins vegar ekki halda fyrr en allir væru komnir úr sumarleyfum. Addi og nafni hans Guðmundur Þór hafa einna lengstan starfsaldur í Fjöliðjunni. Guðmundur Páll Jónsson forstöðumaður Fjöliðjunnar ávarpaði gesti og fór nokkrum orðum yfir starfsferil Adda, yfirburða þekkingu hans á bátum og tónlist og jákvæðnina sem hann ætíð sýndi. Óskaði hann Adda til hamingju með áfangann og kvaðst vonast til að hafa hann í hópnum sem allra lengst, því það bæði bætti og kætti að hafa hann í hópnum.

Addi bauð til veislu í tilefni starfsafmælisins - Skessuhorn