
RKÍ óskar eftir þátttakendum í verkefnið Símavinir
Rauði kross Íslands er með í gangi svokölluð Vinaverkefni. „Markmið allra Vinaverkefna RKÍ er að rjúfa félagslega einangrun fólks með því að veita félagsskap/nærveru og hlýju. Sjálfboðaliðastarfið er unnið út frá þörfum notanda hverju sinni og útfærslur verkefnisins eru því fjölbreyttar,“ segir í tilkynningu þar sem fólk er hvatt til að sækja um að gerast sjálfboðaliðar við verkefnið.