Fréttir

true

Gul viðvörun frá því seint í kvöld vegna hvassviðris og snjókomu

Frá því klukkan 23 í kvöld og til hádegis á morgun er í gildi gul viðvörun á Faxaflóasvæðinu. Það verður austan- og síðar norðaustan hvassviðri með vindhraða á bilinu 10-18 m/s, hvassast á sunnanverðu Snæfellsnesi. Búast má við talsverðri snjókomu á sunnanverðu svæðinu með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar…Lesa meira

true

Eldur í bíl í Hvalfjarðargöngum

Hvalfjarðargöng eru nú lokuð, en eldur kom upp í bíl þar laust fyrir klukkan 16 í dag. Mikill viðbúnaður er vegna þessa, en engar nánari upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að göngin verði lokuð um óákveðinn tíma og bent á hjáleið um Hvalfjörð.Lesa meira

true

,,Kennslan var það sem hafði alltaf vantað í líf mitt“

Rætt við kennarann, blómaskreytinn og tónlistarmanninn Heimir Eyvindarson sem nýlega hóf störf sem skólastjóri við grunn- og tónlistarskólann í Stykkishólmi Heimir Eyvindarson er nýráðinn skólastjóri Grunnskóla Stykkishólms og Tónlistarskóla Stykkishólms. Heimir er Sunnlendingur að uppruna og býr í Hveragerði ásamt eiginkonu sinni Söndru Sigurðardóttur og börnum þeirra. Hann er hvað þekktastur fyrir hljómborðsleik í hljómsveitinni…Lesa meira

true

Grímur AK aflahæsti strandveiðibáturinn yfir landið

Landssamband smábátaeigenda hefur tilkynnt eigendum Gríms AK að þeir hafi verið aflahæstir á strandveiðum sumarsins. Skipstjóri á Grími er Árni Freyr Stefánsson en honum til halds og trausts um borð er Stefán Jónsson faðir hans og fyrrum skipstjóri. Aflaverðmætið á Grími í sumar var rúmar 14 milljónir króna og lönduðu þeir feðgar um 48 tonnum…Lesa meira

true

Bólusetningar að hefjast á heilsugæslustöðvunum

Á heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands eru nú að hefjast bólusetningar gegn inflúensu og Covid-19. Fram kemur í auglýsingu frá HVE, sem birt er í Skessuhorni í dag, að bólusetning við inflúensu er einungis í boði fyrir forgangshópa, þ.e. 60 ára og eldri, en fyrir 60 ára og yngri með undirliggjandi sjúkdóma; (hjarta-, lungna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki,…Lesa meira

true

Opinn fundur á Akranesi í kvöld um Sundabraut

Vegagerðin og Akraneskaupstaður, í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, standa í kvöld fyrir kynningarfundi fyrir íbúa og hagaðila þar sem Sundabraut verður til umfjöllunar. Fundurinn verður 19:30 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavík, vinni að undirbúningi Sundabrautar frá Sæbraut að Kjalarnesi. „Markmið framkvæmdarinnar…Lesa meira

true

Endurbætur á sjóvarnargörðum í Snæfellsbæ

Unnið hefur verið við lagfæringar á sjóvarnargörðum í Snæfellsbæ í sumar. Á mánudag var unnið að endurbótum á garðinum við Ólafsbraut í Ólafsvík, milli innra- og ytra Klifs. Garðurinn er 513 metra langur og er nú endurhlaðinn og hækkaður. Vegagerðin er framkvæmdaraðili og á mánudaginn var verið að lengja ræsið við Hvalsá og steypa undirstöðu…Lesa meira

true

Vinna að alþjóðlegu verkefni um votlendi í Grunnafirði og Hvalfirði

Fuglavernd hefur undanfarna mánuði skoðað möguleika þess að endurheimta votlendi í kringum Grunnafjörð og í Hvalfirði sem hluta af alþjóðlegu verkefni sem fjármagnað er af náttúruverndarfélagi Cambridge í Bretlandi (ELSP – Endangered Landscape and Seascape Programme). Verkefnið miðar m.a. að velferð fugla og umhverfisáhrifum þurrkaðra votlenda. Blaðamaður Skessuhorns hitti í liðinni viku á þær Polina…Lesa meira