Verktakar og starfsmenn Vegagerðarinnar við vinnu í Ólafsvík á mánudaginn. Ljósmyndir: AF

Endurbætur á sjóvarnargörðum í Snæfellsbæ

Unnið hefur verið við lagfæringar á sjóvarnargörðum í Snæfellsbæ í sumar. Á mánudag var unnið að endurbótum á garðinum við Ólafsbraut í Ólafsvík, milli innra- og ytra Klifs. Garðurinn er 513 metra langur og er nú endurhlaðinn og hækkaður. Vegagerðin er framkvæmdaraðili og á mánudaginn var verið að lengja ræsið við Hvalsá og steypa undirstöðu undir það.