
Hvalfjörður. Ljósm. úr safni.
Vinna að alþjóðlegu verkefni um votlendi í Grunnafirði og Hvalfirði
Fuglavernd hefur undanfarna mánuði skoðað möguleika þess að endurheimta votlendi í kringum Grunnafjörð og í Hvalfirði sem hluta af alþjóðlegu verkefni sem fjármagnað er af náttúruverndarfélagi Cambridge í Bretlandi (ELSP – Endangered Landscape and Seascape Programme). Verkefnið miðar m.a. að velferð fugla og umhverfisáhrifum þurrkaðra votlenda. Blaðamaður Skessuhorns hitti í liðinni viku á þær Polina Moroz, umhverfisfræðing frá Rússlandi, og Ástu Marý Stefánsdóttur frá Skipanesi, kynningarstjóra verkefnisins.