
Opinn fundur á Akranesi í kvöld um Sundabraut
Vegagerðin og Akraneskaupstaður, í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, standa í kvöld fyrir kynningarfundi fyrir íbúa og hagaðila þar sem Sundabraut verður til umfjöllunar. Fundurinn verður 19:30 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi.