Fréttir

true

„Engin tilviljun að ég lagði blaða- og fréttamennsku fyrir mig“

Rætt við Skagamanninn Harald Bjarnason um ferilinn í fjörutíu ár í viðtali sem birtist í Skessuhorni árið 2020 „Það var í sjálfu sér engin tilviljun að ég fór í blaða- og fréttamennsku, sem ég hef starfað við í hartnær fjörutíu ár,” segir Skagamaðurinn Haraldur Bjarnason í upphafi samtals okkar. „Ég byrjaði snemma að taka myndir…Lesa meira

true

Mest gaman að gera það sem búið var að segja að væri ekki hægt

Frásögn af leiðangri á Eiríksjökul 1984 að sækja flugvélarflak sem birtist í Skessuhorni árið 2020 Skömmu fyrir hádegi fimmtudaginn 21. júní 1984 brotlenti flugvél á Eiríksjökli með tveimur mönnum innanborðs. Mennirnir voru breskir, búsettir í London, og komu til Íslands á miðvikudagskvöldinu og ætluðu að dvelja hér í fjóra daga. Þeir voru á leið til…Lesa meira

true

Verkefnið Borgarnes í þátíð, nútíð og framtíð kynnt

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar, sem fram fór í gær, kynntu fulltrúar Alternance, niðurstöður forhönnunar á almenningsrýmum í neðri bæ Borgarness. Um er að ræða tvö almenningsrými og ásinn á milli þeirra. Fyrra svæðið er nýtt miðbæjartorg og tenging milli Skallagrímsgarðs og Kveldúlfsvallar. Seinna svæðið er almenningssvæði og torg við Brákarbraut norðan Brákareyjarbrúar. Skýrslan ber heitið…Lesa meira

true

Þriðja tap Reynis í röð í 5. deildinni

Eftir að hafa gert 1-1 jafntefli á móti Smára í fyrsta leik í B-riðli 5. deildar í knattspyrnu hefur lið Reynis frá Hellissandi tapað þremur leikjum í röð og öllum frekar stórt. Á miðvikudagskvöldið mættu þeir toppliði Mídasar sem hafði unnið alla fjóra leiki sína til þessa og lýðnum ljóst að um erfitt verkefni yrði…Lesa meira

true

Byrjað að þjálfa Kickbox í Borgarnesi

Byrjaðar eru æfingar á Kickbox í Borgarnesi. Þjálfari er Carlos Castellano, leikmaður knattspyrnuliðs Skallagríms. Æfingarnar verða þrisvar sinnum í viku, í sal Metabolic í Brákarey. Tekið er á móti öllum iðkendum, hvort sem þeir eru nýliðar eða lengra komnir í íþróttinni. Nánari upplýsingar um starfsemina er að finna á samfélagsmiðlum CD Kickboxing Borgarnes.Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit styður útgáfu veiðileyfis til Hvals hf.

Þriðjudaginn 28. maí síðastliðinn sendi matvælaráðuneytið beiðni til þriggja stofnana og 13 svokallaðra hagaðila, þar sem óskað er umsagna um umsókn Hvals hf. um leyfi til hvalveiða. Hvalur hf. sendi umsókn sína til ráðuneytisins 30. janúar síðastliðinn og á þeim tíma hafa tveir starfandi matvælaráðherrar lokað málið inni í ráðuneytinu, þær Katrín Jakobsdóttir og Bjarkey…Lesa meira

true

Kári kominn á toppinn eftir góðan sigur á KV

KV og Kári áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á KR-velli í Frostaskjóli. Fyrir leik voru Káramenn með tíu stig eftir fimm leiki og KV með þrjú stig og með fjóra tapleiki í röð á bakinu. Það var ekki boðið upp á fallegan fótbolta í fyrri hálfleik enda…Lesa meira

true

Líflegar umræður á kynningu nýs rammaskipulags fyrir Brákarey

Það var þétt setið í húsakynnum Hjálmakletts í Borgarnesi í gær en þar fór fram kynning og umræður um gerð nýs rammaskipulags fyrir Brákarey í Borgarnesi. Guðveig Lind Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar, kynnti verkefnið og fór yfir ferli síðustu ára, til að mynda frá íbúafundi árið 2019 þar sem fram kom vilji íbúa til að sjá…Lesa meira

true

Héldu upp á sextíu ára fermingarafmæli sitt

Stór hópur fermingarbarna ársins 1964 kom saman í Akraneskirkju, fimmtudaginn 16. maí síðastliðinn og minntist þess að 60 ár eru liðin frá fermingu þeirra. Séra Þóra Björg Sigurðardóttir ávarpaði hópinn, rakti m.a. sögu Akraneskirkju og siði og venjur varðandi fermingar fyrr og nú. Eftir góða samverustund í kirkjunni lagði hópurinn leið sína í golfskálann að…Lesa meira