Hvalskurður á plani. Ljósm. úr safni/mm

Hvalfjarðarsveit styður útgáfu veiðileyfis til Hvals hf.

Þriðjudaginn 28. maí síðastliðinn sendi matvælaráðuneytið beiðni til þriggja stofnana og 13 svokallaðra hagaðila, þar sem óskað er umsagna um umsókn Hvals hf. um leyfi til hvalveiða. Hvalur hf. sendi umsókn sína til ráðuneytisins 30. janúar síðastliðinn og á þeim tíma hafa tveir starfandi matvælaráðherrar lokað málið inni í ráðuneytinu, þær Katrín Jakobsdóttir og Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir. Að öllu óbreyttu hefðu hvalveiðar átt að hefjast nú í júní.

Hvalfjarðarsveit styður útgáfu veiðileyfis til Hvals hf. - Skessuhorn