
Ásinn sem liggur á milli Skallagrímsgarðs og Brákareyjar í Borgarnesi.
Verkefnið Borgarnes í þátíð, nútíð og framtíð kynnt
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar, sem fram fór í gær, kynntu fulltrúar Alternance, niðurstöður forhönnunar á almenningsrýmum í neðri bæ Borgarness. Um er að ræða tvö almenningsrými og ásinn á milli þeirra. Fyrra svæðið er nýtt miðbæjartorg og tenging milli Skallagrímsgarðs og Kveldúlfsvallar. Seinna svæðið er almenningssvæði og torg við Brákarbraut norðan Brákareyjarbrúar. Skýrslan ber heitið Borgarnes í þátíð, nútíð og framtíð.