
Úr leik Reynis og Smára fyrr í sumar. Ljósm. tfk
Þriðja tap Reynis í röð í 5. deildinni
Eftir að hafa gert 1-1 jafntefli á móti Smára í fyrsta leik í B-riðli 5. deildar í knattspyrnu hefur lið Reynis frá Hellissandi tapað þremur leikjum í röð og öllum frekar stórt. Á miðvikudagskvöldið mættu þeir toppliði Mídasar sem hafði unnið alla fjóra leiki sína til þessa og lýðnum ljóst að um erfitt verkefni yrði að ræða.