Fréttir

true

Óskar Þór ráðinn þjálfari ÍA í körfunni

Körfuknattleiksfélag ÍA hefur ráðið Óskar Þór Þorsteinsson sem þjálfara meistaraflokks karla og mun hann stýra liðinu í 1. deild á komandi tímabili. Hann tekur við af Nebosja Knezevic sem lét af störfum á dögunum eftir að hafa þjálfað hjá ÍA síðastliðin tvö ár. Fram kemur í tilkynningu frá ÍA að Óskar muni einnig þjálfa yngri…Lesa meira

true

Nemendur brautskráðir frá Landbúnaðarháskóla Íslands

Föstudaginn 31. maí voru nemendur útskrifaðir frá Landbúnaðarháskóla Íslands við athöfn sem fram fór í Hjálmakletti í Borgarnesi en kaffisamsæti var síðan í beinu framhaldi á Hvanneyri. Það var Tabea Elisabeth Schneider sem stóð efst útskriftarnema frá skólanum að þessu sinni, en hún útskrifaðist með BS próf í landslagsarkitektúr með einkunnina 8,97. Hæstu einkunn í…Lesa meira

true

Stór sinubruni í Staðarsveit í gærkvöldi

Sinueldur blossaði upp í Staðarsveit á Snæfellsnesi snemma í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið úr Snæfellsbæ og Grundarfirði var kallað á vettvang. Björgunarsveitir af öllu Snæfellsnesi komu að auki með sexhjól og buggybíla til að aðstoða slökkviliðsfólk að flytja dælur, búnað og mannskap að eldinum. Samkvæmt heimildum Skessuhorns logaði eldur í þurrum sinugróðri á milli Álftavatns,…Lesa meira

true

Skagakonur á toppnum eftir sigur á ÍR

Fimmta umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu hófst í gærkvöldi þegar lið ÍA og ÍR mættust í Akraneshöllinni. Skagakonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og fyrsta færi leiksins kom á 8. mínútu þegar Erna Björt Elíasdóttir átti skalla að marki eftir hornspyrnu Sunnu Rúnar Sigurðardóttur en markvörður gestanna varði vel. Fyrsta markið kom síðan á 16.…Lesa meira

true

Frekari endurbætur á Borgarbraut í Borgarnesi

Fram undan eru áframhaldandi endurbætur á Borgarbraut í Borgarnesi í framhaldi af þeim hluta sem nú hefur verið malbikaður. Á næstu dögum/vikum er áætlað að endurnýja yfirborð á kafla frá gatnamótum Borgarbrautar og Böðvarsgötu og um 75 metra í norðaustur (sjá mynd). Framkvæmdin er í raun tvíþætt, annars vegar verður yfirborð fræst upp og hins…Lesa meira

true

Ekki með ökurita í notkun

Fram kemur hjá Lögreglunni á Vesturlandi að akstur vörubifreiðar var stöðvaður á Snæfellsnesvegi í liðinni viku en skráningarmerki vantaði á bifreiðina. Kom í ljós að ástand hjólbarða undir bifreiðinni reyndist ekki gott og ökumaður var ekki með ökurita í notkun eins og skylt er. Tvö umferðaróhöpp komu á borð lögreglu í vikunni. Þriggja bifreiða árekstur…Lesa meira

true

Dalabyggð fagnar þrjátíu ára afmæli í næstu viku

Það var 11. júní árið 1994 sem sveitarfélagið Dalabyggð varð til, en fleiri sveitarfélög urðu einnig til á því sama ári og má þar nefna Reykjanesbæ og Snæfellsbæ. Skessuhorn kíkti við í kaffi og kleinur á skrifstofu Dalabyggðar undir lok síðustu viku og bankaði upp á hjá sveitarstjóra Dalabyggðar. „Dalabyggð verður 30 ára núna 11.…Lesa meira

true

Vestlendingum býðst að taka á móti skiptinemum

AFS fræðslusamtökin undirbúa komu næstu skiptinema Alþjóðlegu fræðslusamtökin AFS hófu starfsemi sína hér á landi fyrir rúmum 70 árum þegar átta íslenskir skiptinemar sóttu nám til Bandaríkjanna. Síðan þá hefur starfið vaxið og dafnað og fara nú 100-200 nemar árlega til dvalar erlendis og koma að sama skapi um 30-40 erlendir nemar hingað til lands.…Lesa meira

true

Horfin valin besta myndin á kvikmyndahátíð Grundaskóla

Kvikmyndahátíð Grundaskóla á Akranesi var haldin á vordögum skólans, frá 3. til 4. júní. Um 100 nemendur tóku þátt úr 8. til 10. bekk og var markmið hátíðarinnar að efla kvikmyndalæsi, sköpun og kvikmyndaáhuga nemenda. Hátíðin var í samstarfi við Fjölbrautaskólann við Ármúla en þau sjá um að skipuleggja Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna sem er haldin árlega…Lesa meira

true

Metabolic leikarnir fóru fram í annað sinn í Borgarnesi – Myndir

Síðastliðinn laugardag fóru fram Metabolic leikar í Borgarnesi en þetta er annað árið í röð sem leikarnir eru haldnir þar. Alls tóku 14 lið þátt, með tveimur keppendum í hverju liði, en þeir voru beðnir um að setja mikinn metnað í búninga þetta árið ásamt því að mæta tímanlega fyrir upphitun. Aðalmarkmið leikanna er að…Lesa meira