Hér má sjá landið sem brann. Hagavatn uppi til vinstri. Ljósm. Klakkur

Stór sinubruni í Staðarsveit í gærkvöldi

Sinueldur blossaði upp í Staðarsveit á Snæfellsnesi snemma í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið úr Snæfellsbæ og Grundarfirði var kallað á vettvang. Björgunarsveitir af öllu Snæfellsnesi komu að auki með sexhjól og buggybíla til að aðstoða slökkviliðsfólk að flytja dælur, búnað og mannskap að eldinum. Samkvæmt heimildum Skessuhorns logaði eldur í þurrum sinugróðri á milli Álftavatns, Staðarstaðar, Þorgeirsfells og Haga. Að sögn staðkunnugra lokaði Barnalækur, Vallá og Netá að mestu útbreiðslu eldsins en þó slapp eldur suður fyrir sem þurfti að slökkva í, en það má glöggt sjá á meðfylgjandi loftmynd frá björgunarsveitinni Klakki. Talið er að milli 60 og 70 hektarar lands hafi brunnið og lauk slökkvistarfi í gærkvöldi.

Talið er að orsök brunans megi rekja til skammhlaups í rafmagnsstaur í rokinu.

Björgunarsveitarmenn að störfum en áhersla var lögð á að eldurinn færi ekki yfir vatnsföll á svæðinu og tókst það að mestu leyti. Ljósm. grs
Eldur logaði glatt í sinunni og var fljótur yfir í hvassviðrinu. Ljósm. Klakkur

Stór sinubruni í Staðarsveit í gærkvöldi - Skessuhorn