Þétt setinn bekkurinn í Hjálmakletti við útskriftina. Ljósm. LbhÍ

Nemendur brautskráðir frá Landbúnaðarháskóla Íslands

Föstudaginn 31. maí voru nemendur útskrifaðir frá Landbúnaðarháskóla Íslands við athöfn sem fram fór í Hjálmakletti í Borgarnesi en kaffisamsæti var síðan í beinu framhaldi á Hvanneyri. Það var Tabea Elisabeth Schneider sem stóð efst útskriftarnema frá skólanum að þessu sinni, en hún útskrifaðist með BS próf í landslagsarkitektúr með einkunnina 8,97. Hæstu einkunn í ár á búfræðiprófi hlaut Lára Guðnadóttir. Verðlaun voru einnig veitt fyrir bestan árangur fyrir BS lokaverkefni og voru þar jöfn með einkuninna 9,7 Tabea Elisabeth Scheider og Magnús Guðbergur Jónsson Núpan sem bæði brautskráðust úr landslagsarkitektúr.

Nemendur brautskráðir frá Landbúnaðarháskóla Íslands - Skessuhorn