Fréttir

true

Héldu upp á sextíu ára fermingarafmæli sitt

Stór hópur fermingarbarna ársins 1964 kom saman í Akraneskirkju, fimmtudaginn 16. maí síðastliðinn og minntist þess að 60 ár eru liðin frá fermingu þeirra. Séra Þóra Björg Sigurðardóttir ávarpaði hópinn, rakti m.a. sögu Akraneskirkju og siði og venjur varðandi fermingar fyrr og nú. Eftir góða samverustund í kirkjunni lagði hópurinn leið sína í golfskálann að…Lesa meira

true

Þrjú verkefni af Vesturlandi hlutu nýsköpunarstyrk frá Lóu

Tilkynnt hefur verið um úthlutanir úr Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Í ár hljóta 27 verkefni styrk alls fyrir tæplega 139 milljónir króna. Nýsköpunarverkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg og dreifast um landið allt. Styrkjum úr Lóu er ætlað að styðja við eflingu byggða og landshluta með…Lesa meira

true

Kynna á íbúafundi fyrirhugaða rannsókn á botni Hvalfjarðar

Röst sjávarrannsóknasetur hefur boðað til íbúafundar miðvikudaginn 12. júní kl. 19:30 á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit. Þar verða kynntar fyrirhugaðar hafrannsóknir í botni Hvalfjarðar í júlí. Salome Hallfreðsdóttir, framkvæmdastjóri Rastar, mun segja frá rannsókninni, tilgangi hennar og markmiðum, og fulltrúi frá Hafrannsóknastofnun mun fjalla um grunnrannsóknir á haffræði Hvalfjarðar, en Hafrannsóknastofnun hlaut stóran styrk frá…Lesa meira

true

Kjötframleiðsla jókst um 25% í apríl

Á vefsíðu Hagstofunnar kemur fram að kjötframleiðsla í apríl 2024 var samtals 1.889 tonn, 25% meiri en í apríl á síðasta ári. Framleiðsla svínakjöts var 37% meiri en í apríl í fyrra, nautakjötsframleiðslan 23% meiri og alifuglaframleiðslan var 17% meiri. Útungun alifugla jókst um 15% borið saman við apríl 2023.Lesa meira

true

Fá aðgang að líkamsræktarstöðinni í Búðardal

Í gær var undirritaður samningur milli Dalabyggðar og Ungmennafélagsins Ólafs pá varðandi afnot starfsmanna Slökkviliðs Dalabyggðar af líkamsræktarstöð félagsins. Í starfi slökkviliðsmanna er gerð krafa um andlegt og líkamlegt heilbrigði og þar er regluleg hreyfing stór þáttur. „Það er vilji Dalabyggðar að búa yfir vel þjálfuðum og hraustum starfsmönnum innan raða slökkviliðsins og er samningurinn…Lesa meira

true

Gönguhópur á ferðinni

Þó að heilsuefling 60+ í Grundarfirði sé komin í sumarfrí þá sitja iðkendur hópsins ekki með hendur í skauti og bíða haustsins. Nú er búið að setja á laggirnar gönguhóp og er stefnan sett á að ganga sér til heilsubótar á þriðjudögum og fimmtudögum í sumar, ef veður leyfir. Fólkið rétt gaf sér tíma til…Lesa meira

true

Nytjamarkaður opnar aftur í Borgarnesi

Gleðifréttir bárust í gær úr Borgarnesi þegar upplýst var að nytjamarkaður körfuknattleiksdeildar Skallagríms opnar aftur laugardaginn 15. júní en hann hefur verið lokaður frá því í fyrra. Markaðurinn verður til húsa í Brákarey, að Brákarbraut 27. Í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Skallagríms segir að mikil tilhlökkun sé fyrir því að hefja störf að nýju en um…Lesa meira

true

Héldu upp á 70 ára brúðkaupsafmæli

Hjónin Páll Cecilsson og Björk Guðlaugsdóttir fögnuðu 70 ára brúðkaupsafmæli í gær, 5. júní. Þau voru gefin saman þennan dag árið 1954 af sr. Jósef Jónssyni í Setbergskirkju. Þau hafa alla sína búskapartíð búið í Grundarfirði og síðustu misserin á Dvalarheimilinu Fellaskjóli. Börn þeirra eru Guðlaugur Þór, Sævar og Kristín Hrönn og eru afkomendurnir 26…Lesa meira

true

Síðasta útskrift tíundu bekkinga frá Varmalandsskóla

Söguleg útskrift í 69 ára sögu Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi fór fram síðasta þriðjudag. Þetta var í síðasta skipti sem skólinn útskrifar nemendur sem ljúka tíunda bekk. Margt var um manninn í félagsheimilinu Þinghamri en Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri hélt ávarp og 1.-4. bekkur skólans söng fyrir gesti.Lesa meira

true

Þjónustusamningur við Terra staðfestur

Akraneskaupstaður hefur skrifað undir þjónustusamning við Terra umhverfisþjónustu um þjónustu á sviði úrgangsmála næstu sex árin. Fyrirtækið Terra, áður Gámaþjónustan, hefur séð um þessa þjónustu frá árinu 2017 og rann samningurinn um þjónustuna út í lok mars á þessu ári en var framlengdur þar til nýju útboði var lokið og lagði Terra fram hagstæðasta tilboðið…Lesa meira