Síðustu tíundu bekkingarnir að útskrifast. Ljósm. þk

Síðasta útskrift tíundu bekkinga frá Varmalandsskóla

Söguleg útskrift í 69 ára sögu Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi fór fram síðasta þriðjudag. Þetta var í síðasta skipti sem skólinn útskrifar nemendur sem ljúka tíunda bekk. Margt var um manninn í félagsheimilinu Þinghamri en Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri hélt ávarp og 1.-4. bekkur skólans söng fyrir gesti.

Síðasta útskrift tíundu bekkinga frá Varmalandsskóla - Skessuhorn