Ingibjörg, Björn Bjarki, Kristján Ingi og Skjöldur Orri ánægð með samninginn. Ljósm. dalir.is

Fá aðgang að líkamsræktarstöðinni í Búðardal

Í gær var undirritaður samningur milli Dalabyggðar og Ungmennafélagsins Ólafs pá varðandi afnot starfsmanna Slökkviliðs Dalabyggðar af líkamsræktarstöð félagsins. Í starfi slökkviliðsmanna er gerð krafa um andlegt og líkamlegt heilbrigði og þar er regluleg hreyfing stór þáttur. „Það er vilji Dalabyggðar að búa yfir vel þjálfuðum og hraustum starfsmönnum innan raða slökkviliðsins og er samningurinn liður í að efla bæði þá sem þar starfa sem einstaklinga en einnig liðið í heild,“ segir í frétt á vefsíðu Dalabyggðar.

Fá aðgang að líkamsræktarstöðinni í Búðardal - Skessuhorn