
Bjarki og Jóhanna María á skrifstofu Dalabyggðar. Ljósm. hig
Dalabyggð fagnar þrjátíu ára afmæli í næstu viku
Það var 11. júní árið 1994 sem sveitarfélagið Dalabyggð varð til, en fleiri sveitarfélög urðu einnig til á því sama ári og má þar nefna Reykjanesbæ og Snæfellsbæ. Skessuhorn kíkti við í kaffi og kleinur á skrifstofu Dalabyggðar undir lok síðustu viku og bankaði upp á hjá sveitarstjóra Dalabyggðar.